Nov 20, 2020
Brynjar Gunnarsson, afreksþjálfari í frjálsíþróttum, hefur
staðið sig frábærlega í þjálfarastarfinu á undanförnum árum þrátt
fyrir ungan aldur og erfiðan sjúkdóm sem hefur tekið sinn toll.
Brynjar hefur verið þjálfari í yfir áratug og séð um umsjónaþjálfun
yngri flokka hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur um árabil. Undanfarin ár
hefur hann einnig fært sig yfir í afreksþjálfun en hann þjálfar
m.a. íþróttafólk eins og Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur,
Ólympíumeistara ungmenna og Evrópumeistara ungmenna í
spretthlaupum, Tíönu Ósk Whitworth og Jóhann Björn
Sigurbjörnsson sem bæði eru meðal bestu spretthlaupara landsins,
ásamt mörgu öðru flottu íþróttafólki.
Í viðtalinu, sem er tekið af Kristínu Birnu Ólafsdóttur, talar Brynjar um þjálfarastarfið, lífið, ferilinn og sjúkdóminn.