Preview Mode Links will not work in preview mode

Ragna Ingólfsdóttir og Kristín Birna Ólafsdóttir-Johnson ræða við íslenskt afreksíþróttafólk og íslenska þjálfara.

Nov 25, 2020

Júlían J. K. Jóhannsson, Íþróttamaður ársins 2019 og stigahæsti kraftlyftingamaður á Íslandi frá upphafi, er fjórði gestur Verum hraust – Hlaðvarps ÍSÍ.

Júlían hefur náð glæsilegum árangri í kraftlyftingum síðastliðin ár. Á árinu 2019 setti Júlían heimsmet í réttstöðulyftu...


Nov 20, 2020

Brynjar Gunnarsson, afreksþjálfari í frjálsíþróttum, hefur staðið sig frábærlega í þjálfarastarfinu á undanförnum árum þrátt fyrir ungan aldur og erfiðan sjúkdóm sem hefur tekið sinn toll.

Brynjar hefur verið þjálfari í yfir áratug og séð um umsjónaþjálfun yngri flokka hjá...


Nov 11, 2020

Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Íslandsmethafi, stefnir ótrauð á Ólympíuleikana í Tókýó 2021. Guðlaug Edda er annar gestur Verum hraust - Hlaðvarps ÍSÍ. 

Eftir þrjú ár í Danmörku þar sem Guðlaug Edda æfði þríþraut með danska landsliðinu ákvað hún að flytja heim til...


Nov 6, 2020

Anton Sveinn McKee, margverðlaunaður sundmaður og Íslandsmethafi, er í besta formi lífs síns um þessar mundir og er fyrsti gestur Verum hraust - Hlaðvarps ÍSÍ. Hann er tvöfaldur Ólympíufari og stefnir á sína þriðju Ólympíuleika í Tókýó 2021, en hann er jafnframt eini Íslendingurinn sem náð...