Jul 5, 2021
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir er Íslandsmethafi í 100m, 200m og 60m
hlaupi og hefur verið lykilmanneskja í landsliði Íslands um árabil
þrátt fyrir ungan aldur. Guðbjörg Jóna er Ólympíumeistari ungmenna
í 200m hlaupi, en þeim merka áfanga náði hún árið 2018 í Argentínu
og er hún eini Íslendingurinn sem á gull frá Ólympíuleikum
ungmenna. Guðbjörg Jóna varð einnig Evrópumeistari U18 í 100m
hlaupi og náði 3. sæti á sama móti í 200m hlaupi. Hún hefur einnig
unnið þónokkur verðlaun á Norðulandameistaramótum U20 og hefur
verið lykilmanneskja í landsliði Íslands í mörg ár þrátt fyrir
ungan aldur. Guðbjörg Jóna stundar nám í sálfræði við Háskólann í
Reykjavík samhliða því að æfa og keppa af fullu kappi.
Í viðtalinu sem er tekið af Kristínu Birnu Ólafsdóttur talar
Guðbjörg um æfingar, keppnir, lífið og ýmsar áskoranir sem fylgja
því að æfa og keppa á alþjóðavettvangi.